“Book Descriptions: Blaðamaðurinn Alma fær inni í mannlausu húsi æskuvinkonu sinnar til að skrifa ættarsögulega skáldsögu. Óvæntir atburðir verða til þess að hún fer að rannsaka sögu fyrstu íbúa hússins. Skriftirnar þoka fyrir ískyggilegum ráðgátum sem Alma og Sveinbjörg vinkona hennar glíma við. Þær neyta ýmissa bragða í þeirri viðureign, þessa heima og annars. Dularfull fortíð, afbrýði og ástir, sekt og sannleikur fléttast saman í margslunginn söguþráð. Nútíminn speglast í hinu liðna, borgarlífið kallast á við sveitina. Brothætt eikalíf Ölmu er í hættu. Léttleiki tilverunnar er þó aldrei langt undan.” DRIVE