“Book Descriptions: Herra Hnetusmjör – Árni Páll Árnason – hefur verið eins og hvirfilbylur í íslensku tónlistarlífi á undanförnum árum. Lögum hans er streymt í milljónum skipta á tónlistarveitum og framganga hans á tónleikum hefur vakið mikla athygli og aðdáun.
En hver er maðurinn á bak við dökku sólgleraugun? Lífsganga hans hefur verið skrykkjótt og sannkölluð rússibanareið: Hamingjurík æska í Hveragerði. Spenna og togstreita unglingsáranna í Kópavogi. Íslenska rappið og leiðin á toppinn. Freistingar dópsins. Skuggahliðar Reykjavíkur. Að falla til botns í neyslu og óreglu og spyrna sér þaðan á ný til hamingjuríks fjölskyldulífs.” DRIVE